Hvalaskoðun Reykjavik Elding & Hafsúlan
Tel:
info@elding.is


News
Vetraráætlun 2009-2010
Helgaráætlun frá Skarfabakka - Sundahöfn frá 1.október 2009 til 14. maí 2010 (silgt alla laugardaga og sunnudaga):
Til Viðeyjar frá Skarfabakka:
13:15 - 14:15 - 15:15
Frá Viðey til Sundahafnar
13:30 - 14:30 - 15:30 - 16:30 - 17:30
_________________________________________________________
Imagine Peace siglingar
Þann 9. október 2007 var friðarljósið í listaverkinu Imagine Peace Tower tendrað. Verkið er tileinkað minningu John Lennons sem hefði þá orðið 67 ára gamall og voru borgarstjórinn í Reykjavík og listakonan Yoko Ono ásamt gestum viðstödd sérstaka athöfn í Viðey.
Á hverju ári mun friðarsúlan lýsa frá 9. október (fæðingardegi Lennons) til 8. desember (dánardags hans). Einnig verður kveikt á ljósinu á gamlársdag, á jafndægri að vori þegar ljósið mun loga í viku og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn og Reykjavíkurborg koma sér saman um. Rafmagnið í súluna er framleitt úr jarðhita og kemur frá Orkuveitu Reykjavíkur.
Frá 9. október til 8.desember verður boðið upp á kvöldsinglingar kl 20:00 frá Skarfabakka til að skoða Friðarsúluna, Imagine Peace Tower. Leiðsögumaður tekur á móti gestum og gengur með þeim niður að verkinu og fjallar um það sem fyrir augum ber.Viðeyjarstofa eða Viðeyjarnaustið er opið öll kvöldin þar sem gestir geta set tóskir sínar á óskatré.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 555-3565.
_________________________________________________________
Áæltun fyrir sumarið 2010 er í vinnslu
SUMAR 2009
Áætlun frá Skarfabakka - Sundahöfn frá 15. maí til 30. september.
Til Viðeyjar frá Skarfabakka:
11:15 - 12:15 - 13:15 - 14:15 - 15:15 - 16:15 - 17:15 - 19:15
Til Viðeyjar frá gömlu höfninni í Reykjavík (Ægisgarður)
12:00
Frá Viðey til Sundahafnar
11:30 - 12:30 - 13:30 - 14:30 - 15:30 - 16:30 - 17:30 - 19:30 - 20:30
Frá Viðey til gömlu hafnarinnar í Reykjavík (Ægisgarður)
15:30
Strætó nr. 5 stoppar 300 metra frá Skarfabakka.
Til að stækka kortið af hafnarsvæðinu þarf aðeins að smella á myndina.
VIÐEY

Viðey er merkur sögustaður. Þar hafa fundist merki um mannvistir allt frá 10. öld. Árið 1225 var reist klaustur í eynni, mikið menningar- og lærdómssetur, og var svo til siðaskipta. "Faðir Reykjavíkur", Skúli Magnússon landfógeti lét byggja Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju á seinni hluta 18. aldar. Viðeyjarstofa er elsta steinhús landsins og Viðeyjarkirkja er með upprunalegum innréttingum. Viðey er gjöf íslenska ríkisins til Reykjavíkurborgar á 200 ára afmæli hennar, 18. ágúst 1986.
Nánari upplýsingar um ferjusiglingar og veitingaþjónustu veitir Elding- Hvalaskoðun Reykjavík, s: 533 5055.
Rekstrarstjórinn Eldingar í Viðey er Guðlaugur Ottesen Karlsson (gulli@elding.is)
Myndir frá Viðeyjarhátíðinni 22. júní 2008
Upplýsingar og leiðsögn
Skólahópar
Móttaka skólahópa býðst í september, maí og fram í júní. Einnig stendur grunnskólum og leikskólum til boða að koma í Viðeyjarnaustið alla virka daga frá lok apríl og út maímánuð milli kl. 9:00 og 14:00.
Viðeyjarstofa
Veitingasala er í Viðeyjarstofu alla daga frá 15. maí til 30. september kl. 11:30 -17:00. Á kvöldin er hægt að panta fyrir hópa, en efri salurinn tekur allt að 150 manns í sæti. Matseðla er hægt að skoða hér.
Viðeyjarnaustið
Naustið er einfaldur skáli sem rúmar ca 80 -100 manns. Við skálann er útigrill en inni er salernisaðstaða og vísir að eldhúsi með kaffivél. Naustið þarf hver hópur að þrífa eftir sig. Naustið er til frjálra afnota til kl. frá kl. 11- 17 á daginn en á kvöldin er það leigt út og lokað fyrir almenningi. Leigan á Viðeyjarnaustinu eftir kl 17 til kl 22 er 50.000 kr. Nánari upplýsingar í síma 555-3565 / 824-1076.
Netfang: elding@elding.is og gulli@elding.is
Friðland fugla
Á suðausturhluta eyjarinnar er friðað varpland. Þar má ekki ganga á tímabilinu 1.maí - 1. júlí.
Verkefnisstjóri fyrir Viðey er Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir. Sími: 693-1440 og netfang: videy@reykjavik.is