:: Login
 Username:
 
 Password:
 

  Hvalaskoðun Reykjavik Elding & Hafsúlan 

Sími: 555 3565
  Fax: 554 7420
info@elding.is

 -
 
 
 
Gay friendly
 

 


Hvalaskoðun og skemmtisiglingar frá Reykjavíkurhöfn

06. október 2011 | 18:14

Friðarsúlan tendruð 9. október í fimmta sinn

videy_mynd_fyrir_9

Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar býður Yoko Ono gestum í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar sunnudagskvöldið 9. október frá kl 18:00 til 19:30 og tilbaka frá kl 21:00.

Á afmælisdegi John Lennon, sunnudaginn 9.október kl. 20:00 verður Friðarsúlan í Viðey tendruð í fimmta sinn. Viðeyjarnaust verður opið þetta kvöld og munu tónlistarmennirnir Jóel Pálsson og Óskar Guðjónsson spila fyrir gesti bæði fyrir og eftir tendrun auk þess sem Óskatré Yoko Ono verður staðsett í Naustinu þar sem verður friðsæl og notaleg stemning við kertaljós og hægt að kaupa sér hressingu. Dagskrá við Friðarsúluna inniheldur m.a. söng Graduale Nobili kórsins undir stjórn Jóns Stefánssonar.

Í Viðeyjarstofu hefst Óður til friðar með kvöldverði og tónlistardagskrá helguð John Lennon en nauðsynlegt er að panta borð á elding@elding.is.

Siglingar til Viðeyjar að kvöldi 9. október verða að venju frá Skarfabakka og hefjast þær kl.18:00. Síðasta ferð í Viðey verður kl. 19:30.

Siglingar í land eftir tendrun verða kl. 21:00 - 22:00.

Mánudaginn 10. október hefjast svo hefðbundnar Friðarsúlusiglingar sem farnar verða kl.20:00 á hverju kvöldi til 8. desember. Gjald í þær ferðir er kr. 5000.- fyrir fullorðna og kr. 2500.- fyrir börn 7-15 ára. Allar nánari upplýsingar um þessar ferðir er að finna á www.elding.is




föstudagur 24.5 2013
Click here to view English version Click here to view Island version Click here to view Island version Click here to view Italian version Click here to view France version Click here to view German version Click here to view Spanish version
:: Bókaðu á netinu!

 

:: Tilboð


:: Hvaladagbókin
           
:: Gestabókin
27. janúar 2013 | 11:27



06. júlí 2012 | 12:18


06. júní 2012 | 09:41



:: Bátarnir okkar