FRÆÐSLUSETUR
Aðgangur að setrinu er ókeypis fyrir gesti í hvalaskoðun
Í fræðslusetrinu eru upplýsingar í máli og myndum um hvali, fugla og önnur sjávardýr og lifnaðarhætti þeirra.
Þar er hægt að kaupa kaffi og meðlæti á meðan beðið er eftir næstu ferð. Einnig er fræðslusetrið opið fyrir fólk sem vill stoppa og fá sér kaffi og með því og/eða bara skoða setrið í rólegheitum.
Greiður aðgangur er um borð í Hafsúluna frá móttökusalnum.