Mynd: Jón Baldur Hlíðberg
LUNDI
Puffin
Fratercula
- Staða: Varpfugl við landið en er einnig farfugl
- Fjöldi: 3 milljónir para á Íslandi
- Heimkynni: Kemur til landsins í apríl og yfirgefur landið í ágúst-september
- Ungar: Verpir 1 eggi á ári, það tekur ungann 35-36 daga að verða fleygur
- Hreiður: Grefur sér holu í jörðina sem getur verið allt að 2 metra long og er tvískipt, eitt herbergi fyrir ungann og annað fyrir úrganginn
- Einkenni: Fuglinn hefur litríkan gogg sem er gulur, blár og rauður, en það er aðeins yfir mökunartímann. Lundar eru einkvænisfuglar og maka sig til lífstíðar. Þeir koma ávallt í sama hreiðrið á hverju ári.
Í sunnanverðum Faxaflóa finnast nokkrar lundabyggðir, t.d. í Harðarhólma í Hvalfirði og í Lundey og Akurey á Kollafirð. Lundabyggðin í Akurey er þeirra stærst.
Frá miðjum maí fram í miðjan ágúst, er farið að Akurey eða Lundey í hverri hvalaskoðunarferð Eldingar. Frá skipsfjöl má sjá holur lundans sem þeir grafa niður í svörðinn fyrir hreiður sín. Í eynni verpur einnig skarfur, sílamávur, hettumávur, æður, teista ásamt fleiri sjófuglum. Akurey er gersemi rétt við bæjardyrnar, kílómeter frá ys og þys miðborgar Reykjavíkur.