:: Login
 Username:
 
 Password:
 

  Hvalaskoðun Reykjavik Elding & Hafsúlan 

Sími: 555 3565
  Fax: 554 7420
info@elding.is

 -
 
 
 
Gay friendly
 

 

Hvalir! Ótrúlegar skepnur, svo forvitnilegar og í senn svo dularfullar. Hvalir eru með fjölbreyttustu spendýraættbálkunum og eru þeir þekktir fyrir að brjóta hin ýmsu met. Steypireyðurin er stærsta skepnan sem lifað hefur á jörðinni, steypireyður og langreyður eru háværustu lífverurnar á jörðinni, sá sem framkallar flóknustu og lengstu söngvanna í dýraríkinu er hnúfubakurinn og búrhvalurinn er fær um að kafa dýpra en nokkuð annað spendýr.

 

Það er svo lítið sem við vitum um þessi spendýr þrátt fyrir óendanlegar rannsóknir á þeim síðustu áratugina. Hvalir hafa virkilega fjörgað ímyndunarafl sögumanna í gegnum tíðina. Á fyrri öldum voru til ýmsar sögur á Íslandi af ógurlegum hvölum með rauð höfuð sem flökkuðu um höfin í gríðarstórum hópum og tortímdu öllum þeim skipum og mönnum sem urðu á vegi þeirra. Með tímanum hefur maðurinn komist að allt öðrum staðreyndum um hvalina og fundið út þeir eru ótrúlega friðsamar skepnur og oft á tíðum mjög forvitnar og gæfar.

 

Enn eru vísindamenn að finna nýjar tegundir hvala, sem dæmi var staðfest ný tegund stórhvelis í suðurhöfum síðsumars árið 2003, um er að ræða reyðarhval sem ekki er ólík langreyði og sandreyði. Í dag eru þekktar 84 hvalategundir en innan þess teljast stórhveli, höfrungar og hnísur. Af þessum tegundum eru 14 skíðishvalategundir og 70 tannhvalategundir.

 

Í dag vinna rannsóknarmenn hörðum höndum við hvalarannsóknir og áhrif athafna mannsins á lífsskilyrði þeirra. Tækninni fleytir fram og við erum sífellt að læra meira um þessi dulafullu spendýr hafdjúpanna.

 

 

 



fimmtudagur 17.5 2012
Click here to view English version Click here to view Island version Click here to view Island version Click here to view Italian version Click here to view France version Click here to view German version Click here to view Spanish version
:: Bókaðu á netinu!

logo_imagine_reykjavik 

:: Tilboð

bordi_135x70 

:: Hvaladagbókin
           
:: Gestabókin
19. apríl 2012 | 10:39


02. apríl 2012 | 14:01


02. apríl 2012 | 13:58




:: Bátarnir okkar