Umhverfisstefna Eldingar

Á síðastliðnum árum hefur mikið verið fjallað um sjálfbæra ferðamennsku, en hún felur í sér að mæta þörfum nútímans án þess að ganga á möguleika framtíðarinnar. Elding Hvalaskoðun hefur ákveðið að tileinka sér umhverfisstefnu í sínum rekstri til að geta stuðlað að sjálfbærri uppbyggingu til framtíðar.  

Umhverfisvottun í ferðaþjónustu er viljayfirlýsing sem miðar að sjálfbærri þróun. Árið 2010 fékk elding silfur vottun frá EarthCheck og í maí 2006 fékk Elding  Bláfánaveifunna á skip sín. Áður hafði Elding hlotið vottun frá Green Globe.  

Earthcheck (áður Green Globe) er viðmiðunar-og vottunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er byggt á Dagskrá 21 og gefur fyrirtækjum og samfélögum tækifæri á að vinna á markvissan hátt að umhverfismálum. Earthcheck leggur áherslu á þá meginý ætti tengda umhverfinu, félags- og efnahagsmálum sem hafa mest áhrifa á umhverfið. Fyrirtæki í ferðaþjónusta og samfélög innan Earthcheck eru afð finna um allan heim og í helstu greinum innan ferðaþjónustunnar.  Nánari upplýsingar um EarthCheck má finna á heimasíðu
samtakanna: http://www.earthcheck.org/.

Bláfáninn er alþjóðlegt merki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Þau fyrirtæki sem hafa fengið Bláfánaveifu hafa gefið fyrirheit um góða umgengni við hafið og umhverfið í heild. Nánari upplýsingar um Bláfánann er að finna á heimasíðu Landverndar: http://www.landvernd.is/blafaninn/

Bláfáninn veittur sjá frétt

Umhverfisvottun snýst ekki einungis um umhverfismál, heldur tekur það ferli einnig til þátta eins og siðferðis, sanngjarnra viðskiptahátta og félagslegrar ábyrgðar og mótar Elding sér þ.a.l. heildstæða stefnu í átt til sjálfbærrar þróunar.

Við teljum tvímælalaust að umhverfisvottun sé árangursríkt tæki. Í fyrsta lagi er náttúran helsta aðdráttarafl sem ferðaþjónusta á Íslandi byggir mikið á, það hlýtur því að vera ávinningur fyrir alla að vel sé haldið utan um þá auðlind. Í öðru lagi felur umhverfisstjórnun í sér ákveðna sjálfbærni og getur því verið hvati á sitt nánasta umhverfi og rennt styrkari stoðum undir atvinnulíf á svæðinu. Einnig er vert að minnast á að slagorð Reykjavíkurborgar „Pure Energy“ og finnst okkur við hæfi að leyfa gestum okkar að upplifa þá hreinu orku sem lífríki hafsins og náttúran hefur upp á að bjóða.

Hjálpumst að til að geta notið auðlinda okkar um ókomna tíð!

Bestu kveðjur,
Starfsfólk Eldingar

 

Frétt frá nóvember 2008 þegar fyrirtækið fékk Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu.
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2008

Þann 20. nóvember var haldið árlegt Ferðamálaþing á Grand Hótel í Reykjavík. Í lok dagsins eftir marga áhugaverða fyrirlestra og umræður, voru umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent. Í ár fengum við þessi verðlaun fyrir markvissa stefnu og fyrir að hafa sett okkur það markmið að vinna að stöðugum úrbótum í umhverfismálum. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra afhenti okkur verðlaunin á ferðamálaþinginu. 

 

Frétt frá október 2008 þegar fyrirtækið fékk fulla umhverfisvottun Green Globe:

Elding - Hvalaskoðun Reykjavík fær Green Globe vottun
Í gær…

Lengi vel hafa eigendur og starfsmenn Eldingar leitað leiða til að standa sig betur í umhverfismálum. Við siglum í villtri náttúru og okkur hefur ávallt fundist mikilvægt að reyna að lágmarka neikvæð áhrif á umhverfið okkar.  Eftir að bátar okkar fengu Bláfánann vildum við gera aðeins betur og ákváðum því að vinna eftir Green Globe 21 umhverfisvottunarkerfinu.  Við fórum í gegnum ákveðið ferli sem felur í sér umhverfisstefnu, markmiðasetningu, áætlanagerð, umhverfissúttekt og að lokum framkvæmd og rekstur kerfisins.
 
Í dag…

Fyrr í mánuðinum fengum við loks fulla  Green Globe 21 vottun. Þetta er mikill sigur fyrir okkur, en fyrirtækið hefur  unnið að þessu  markmiði síðastliðin tvö ár. Green Globe 21 setur viðmið um umhverfis- og samfélagslega frammistöðu fyrirtækjanna í þeim tilgangi að þau fái vottun og bæta sig sífellt á því sviði.
Helstu markmið okkar eru:

-Kappkosta að finna lítið/minna mengandi orkugjafa fyrir dagleg störf
-Lágmarka notkun orku
-Lágmarka notkun efna í daglegum störfum
-Lágmarka framleiðslu sorps/ úrgangs og hámarka endurvinnslu
-Nota helst umhverfisvænar og staðbundnar vörur
-Veita starfsfólki reglulega fræðslu um umhverfis- og öryggismál
-Fræða gesti um lífríki hafsins og umhverfið sem við störfum í


Umhverfisvottun snýst ekki einungis um umhverfismál, heldur tekur það ferli einnig til þátta eins og siðferðis, sanngjarnra viðskiptahátta og félagslegrar ábyrgðar og mótar fyrirtækið sér þ.a.l. heildstæða stefnu í átt til sjálfbærrar þróunar. Við teljum tvímælalaust að umhverfisvottun sé árangursríkt stýritæki fyrir fyrirtækið, bæði á sjó sem og á landi.
Á morgun…

Að okkar mati er það ávinningur fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki að tileinka sér umhverfisstefnu í rekstri sínum mati og getur það gegnt lykilhlutverki í sjálfbærri uppbyggingu til framtíðar í íslenskri ferðamennsku.  Það að tileinka sér umhverfisvottun í ferðaþjónustu getur skapað aukin sóknarfæri þar sem fyrirtæki í greininni geta styrkt ímynd sína, bætt samkeppnistöðu í því markaðsumhverfi sem þau starfa og þetta er í leiðinni ákveðinn gæðastimpill til neytandans, í okkar tilviki ferðamannsins. Við teljum því  að umhverfisvottun sé árangursríkt tæki til að vinna eftir . Í fyrsta lagi er náttúran helsta aðdráttarafl sem ferðaþjónusta á Íslandi byggir á, það hlýtur því að vera ávinningur fyrir alla að vel sé haldið utan um þá auðlind. Í öðru lagi felur umhverfisstjórnun í sér ákveðna sjálfbærni og getur því verið hvati á sitt nánasta umhverfi og rennt styrkari stoðum undir atvinnulíf á svæðinu.
,,Mætum þörfum nútímans án þess að ganga á möguleika framtíðarinnar!”


Það er von okkar að sem flestir í ferðaþjónustu taki þátt í þessu fróðlega ferðalagi með okkur ;-)

SMART H2 verkefnið um borð á Eldingu